Fréttir

Sund | 16. ágúst 2021

Skráning hafin í sundið

Byrjun tímabils - Innritun – Prufuæfngar 2021-2022
Allir sundmenn verða innrita sig og ganga frá gjöldum fyrir tímabilið.
Innritun hefst 17. ágúst.
Allir nýir sundmenn verða að mæta á prufuæfingu í Akurskóla fimmtudaginn 19. ágúst kl. 16:00 -17:00. Þar metur Jóna Helena þjálfari hvaða hópur hentar best hverjum og einum.
Annars verða prufuæfingar í vetur eftir samkomulagi og fara fram í Akurskóla. Hafið samband við Jónu Helenu þjálfara, S: 849-0222 netfang: jonahelena@gmail.com
Sundskólahóparnir Gullfiskar og Silungar raðast sjálfkrafa eftir aldri.
Í hópa frá Löxum og upp úr er raðað eftir getu. Eingöngu nýir meðlimir fara á prufuæfingu.
Aðrir sundmenn tilheyra áfram þeim hópi sem þeir voru í þangað til þeir fá boð um tilfærslu.
Ef þú hefur áhuga á að vera í okkar frábæra sundliði þá finnur þú hér gjaldskrána, æfingartöflur og upplýsingar um æfingahópana okkar.
Afrekshópur og Framtíðarhópur fóru af stað í byrjun ágúst.
Æfingar hjá Háhyrningum hefjast 20. ágúst.
Æfingar hjá öllum yngri hópum hefjast miðvikudaginn 25. ágúst.
Gjaldkerar félagsins veitir upplýsingar um skráningar og öllu sem því við kemur.
Skráning fer fram á síðunum keflavik.is (https://www.sportabler.com/shop/sundradirb/sund 
Gjaldkeri Sunddeildar Keflavíkur er Lilja Dögg Karlsdóttir GSM: 821 6379 Netfang: gjaldkeri.sk@gmail.com

Við viljum minna alla foreldra að nýta hvatagreiðslur Reykjanesbæjar í skráningarferlinu þegar við á.