Gjaldskráin 2022-2023

Upplýsingar um æfingagjöld, greiðslufyrirkomulag og fleira.
 

Æfingargjöld sundárið 2022-2023

Hópar Verð 2022-2023
Gullfiskar 17,950- per önn
Silungar 79.600
Laxar 89.050
Sprettfiskar 89.050
Flugfiskar 99,850
Sverðfiskar 124.050
Háhyrningar 134.740
Framtíðarhópur 164.950
Afrekshópur 175,770

 

Fjölskylduafsláttur af æfingagjöldum er 15% fyrir hvert barn sem syndir með ÍRB ef fleiri en einn úr fjölskyldu er í sundi.

SSÍ gjald.  Sundsamband Íslands innheimtir þjónustugjald af öllum sundfélögum á landinu.  Þessi gjöld notar SSÍ til að þjónusta félögin og iðkendur.  Rukkað er grunngjald fyrir alla iðkendur kr. 3.000.  SSÍ innheimir kr. 7.000 í viðbót fyrir þá sundmenn sem farnir eru að keppa á sundmótum SSÍ (AMÍ, UMÍ og ÍM). SSÍ gjöld eru innifalin í árgjaldinu.

Stungugjöld.  Hver stunga á móti kostar a.m.k. 400 kr. Sum félög rukka helmingi meira fyrir hverja stungu. Stungugjöld eru innifalin í árgjaldinu.

Félagsgjald.  Allir þátttakendur 10 ára og eldri í Keflavík, íþrótta- og ungmennafélagi og UMFN þurfa að greiða félagsgjald sem er kr. 1000 á ári. Þetta gjald er innifalið í árgjaldinu.

Uppsögn: Ef sundmaður hættir að æfa á tímabilinu er uppsagnarfrestur einn mánuður. Uppsögn skal berast til gjaldkera félagsins á netfangið: hjordis@keflavik.is

Reikningsnúmer og kt. Sunddeildar KEFLAVÍKUR: 0121-26-13000 kt. 500894-2379