Fréttir

Sund | 15. júní 2010

Akranesleikar 2010

Fyrstu helgina í júní héldu Höfrungar og Hákarlar sunddeildar ÍRB til Akraness til að taka þátt í Akranesleikunum. Mótið var haldið í útilaug og voru veðurguðirnir okkur afar hliðhollir allan tímann. Allir sundmenn ÍRB, sem voru tuttugu talsins, bættu tímana sína og náðu nokkrir lágmörkum fyrir Aldursflokkameistarmót Íslands (AMÍ) sem haldið verður í Hafnarfirði í lok júní. Gaman var að sjá góðan árangur sundkrakkanna eftir æfingar vetrarins. Keppendur okkar voru til fyrirmyndar í alla staði og skemmtu sér vel á frábæru móti.