ÍRB með glæsilega forystu!
Glæsilegur dagur í gær á AMÍ. ÍRB hélt áfram að gera góða hluti í lauginni og eignuðumst við fjölmarga Aldursflokkameistara. Í dag bætust í hópinn eftirfarandi:
Stefanía Sigurþórsdóttir 200 bringa 12 ára og yngri
Baldvin Sigmarsson 200 bringa 15-16 ára
Berglind Björgvinsdóttir 200 bringa 15-16 ára
Kristófer Sigurðsson 200 bringa 16-17 ára
Sigmar Marijón Friðriksson 400m fjórsund 12 ára og yngri
Eydís Ósk Kolbeinsdóttir 400m fjórsund 12 ára og yngri
Jóhanna Júlía Júliusdóttir 400m fjórsund 15-16 ára
Eydís Ósk Kolbeinsdóttir 200 flug 12 ára og yngri
Ingi Þór Ólafsson 200 flug 13-14 ára
Birta María Falsdóttir 200 flug 13-14 ára
Baldvin Sigmarsson 200 flug 15-16 ára
Jóhanna Júlía Júlíusdóttir 200 flug 15-16 ára
Erla Sigurjónsdottir 200 flug 17-18 ára
Þá synti Davíð Hildiberg einnig í 100m skriðsundi og vann sinn flokk en ekki eru veitt aldursflokkaverðlaun í 19 ára og eldri.
Boðsundssveitirnar voru líka að gera góða hluti og eftirfarandi sveitir unnu einnig gull í 4x100m skriðsundi:
12 ára og yngri meyjar
13-14 ára drengir
13-14 ára telpur
15-16 ára piltar
15-16 ára stúlkur
ÍRB leiðir keppni liða með næstum þriðja hluta stiga sem eru í pottinum. ÍRB er með 803, Ægir er með 366 og Fjölnir er með 335.
Annar góður dagur dag og við hvetjum alla til að koma og horfa á skemmtilegt mót í Vatnaveröld.