Fréttir

Sund | 7. nóvember 2006

Styrktartónleikar til heiðurs Þuríði Örnu

Kæra sundfólk og aðrir, leggjum okkar af mörkum til aðstoðar við þessa fjölskyldu sem gengur í gegnum erfiða tíma vegna veikinda stúlkunnar þeirra.Foreldrar stúlkunnar eru Óskar Örn Guðbrandsson og Áslaug Ósk Hinriksdóttir sem  við þekkjum öll, en Óskar vann um árabil fyrir SSÍ. Leggjumst á eitt til að létta undir með þeim. Þjálfarar og stjórnir.

Þuríður Arna greindist með illvíga flogaveiki í október 2004 og í kjölfarið fundust æxli í höfði hennar sem á þeim tíma voru greind góðkynja.Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur ekki tekist að vinna bug á meini hennar og nú er svo komið að æxlið er skilgreint sem illkynja og útlit fyrir að  frekari meðferðarúræði séu ekki fyrir hendi. Nú ætlum við að leggjast á eitt og safna fjármunum til að hún og foreldrar hennar geti átt góðar stundir saman.

Tónleikar

Til styrktar og heiðurs Þuríði Örnu Óskarsdóttur í Bústaðarkirkju Miðvikudaginn 8. nóvember kl 20.

Fram koma

Stebbi og Eyfi, Regína Ósk, Garðar Örn Hinriksson, Signý Sæmundsdóttir, Jóhann Friðgeir, Hanna Þóra og Ólöf Inga Guðbrandsdætur.

Ásamt

Guðmundi Sigurðssyni, Vilhelmínu Ólafsdóttur, Matthíasi Baldurssyni og Guðmundi S Sveinssyni

Kynnir verður

Anna Björk Birgisdóttir

Aðgangseyrir 2000 kr

Allt fé sem safnast á tónleikunum rennur óskert til Þuríðar Örnu og fjölskyldu hennar.

Þeir sem sjá sér ekki fært að komast en vilja leggja þessu einstaka málefni lið, geta lagt inná þennan reikning:

 

 525-14-102022 og kt: 200502-2130.

_____________________ Confidentiality _____________________

 

This electronic transmission is strictly confidential and intended

solely for the addressee. It may contain information which is covered

by legal, professional or other privilege. If you are not the intended

addressee, you must not disclose, copy or take any action in reliance

of this transmission. If you have received this transmission in error,

please notify us and delete the received data as soon as possible.

 

This footnote also confirms that this email message has been swept

for the presence of computer viruses.

_______________________________________________________