Fréttir

Sund | 30. mars 2026

Íslandsmót í sundi

Sundlið okkar náði frábærum árangri á Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug (ÍM50) sem
fram fór um helgina (27.-29.mars). Alls tóku 33 sundmenn frá félaginu þátt og stóðu þau sig
með miklum sóma.

Árangurinn lét ekki á sér standa, en liðið vann til 7 Íslandsmeistaratitla og 12
Unglingameistaratitla, auk fjölda annarra verðlauna.

Þau sem urðu Íslandsmeistarar voru:
Guðmundur Leo Rafnsson Íslandsmeistari í 50m, 100m, og 200m baksundi og 100m
skriðsundi.
Eva Margrét Falsdóttir Íslandsmeistari í 200m og 400m fjórsundi.
Adriana Agnes Derti Íslandsmeistari í 200m flugsundi.
Þau sem urðu Unglingameistarar voru:
Margrét Anna Lapas Unglingameistari 50m, 100m og 200m bringusundi.
Mikael Fannar Arnarson hann var Unglingameistari í 50m og 200m baksundi.
Denas Kazulis Unglingameistari í 50m og 100m skriðsund.
Guðrún Ísold Harðardóttir Unglingameistari í 800m og 1500m skriðsundi.
Daði Rafn Falsson Unglingameistari í 200m fjórsundi.
Árni Þór Pálmason Unglingameistari í 800m skriðsundi.
Adriana Agnes Derti Unglingameistari í 200m flugsund.
Gísli Kristján Unglingameistari í 50m flugsundi.

Sundmennirnir sýndu miklar framfarir og bættu sig í mörgum greinum, en sérstaklega er
ánægjulegt að sjá hversu margar persónulegar bætingar náðust á mótinu. Þá náðu nokkrir
sundmenn landsliðslágmörkum sem er stór áfangi í þeirra ferli.

Guðmundur Leo tryggði sér þátttökurétt á EM50 þegar hann synti undir lágmarkinu í bæði
100m og 200m baksundi með glæsilegum árangri. Þá náðu þær Eydís og Guðrún Ísold inn á
mót með Framtíðarhóp sem fer til Taastrup, í Danmörku í maí sem er frábær árangur.

Á mótinu voru slegin alls 24 innanfélagsmet sem undirstrikar þann mikla styrk og framfarir
sem eru í liðinu um þessar mundir.

Samhliða ÍM50 átti félagið einn keppanda á Íslandsmeistarmóti ÍF. Þar stóð Franciszek
Adam Czachorowski sig afar vel og vann til Íslandsmeistaratitil í 100m skriðsundi, auk þess
að hljóta silfurverðlaun í bæði 50m og 200m skriðsundi.
Heilt yfir var árangur sundfólksins stórkostlegur og ber vott um mikla vinnu, metnað og
liðsheild. Þjálfarar liðsins eiga mikið hrós skilið fyrir sitt framlag ásamt sundfólkinu sjálfu
fyrir dugnað og elju undanfarna mánuði. Einnig eru færðar sérstakar þakkir til allra þeirra
sjálfboðaliða sem lögðu sitt af mörkum og aðstoðuðu við framkvæmd mótsins.
Framtíðin er björt hjá sundliðinu okkar.
Áfram ÍRB!

 

Myndasafn