Fréttir

Skráning er hafin - Nýtt sundtímabil að hefjast
Sund | 15. ágúst 2024

Skráning er hafin - Nýtt sundtímabil að hefjast

Kæru foreldrar og sundmenn nú er tímabilið loksins að fara af stað. Við gátum ekki gefið neitt út fyrr en við náðum að ráða þjálfara í allar þær laugar sem við höldum úti æfingum. En nú er þetta að skýrast. Æfingatöflur fyrir alla hópa birtast á morgun og opnað verður fyrir skráningu á Sportabler eftir helgi.

Starfið fer síðan af stað af fullum krafti hjá öllum hópum á þessum dagsetningum.

Afrekshópur og Framtíðarhópur byrjaði 29. júlí.

Háhyrningar byrja 19. ágúst.

Allir aðrir hópar byrja 28. ágúst samkvæmt æfingatöflum.

Allir nýjir iðkendur þurfa að mæta á prufuæfingu í Vatnaveröld kl. 17:30 mánudaginn 19. ágúst.

Þannig er sundmönnum raðað í hópa í þeirri laug sem þau vilja æfa. Gjaldkerar verða á staðnum og aðstoða við skráningu á Sportabler.

 

Öll skráning er á Abler

https://www.abler.io/shop/sundradirb