Fréttir

1 vika til stefnu!
Sund | 17. júní 2015

1 vika til stefnu!

Nú er bara ein vika, 7 dagar, 168 tímar eða 10080 mínútur eftir þar til við leggjum af stað á Akureyri og lokaundirbúningur er í fullum gangi fyrir stóru keppnina.

Það eru þó færri æfingadagar svo það er mjög mikilvægt að allir sundmenn leggi sig 100% fram við sundið. 

Við fáum reglulega að heyra hvers vegna sundmenn komist ekki á æfingu vegna annarra æfinga eða tómstunda en núna þegar svona stutt er eftir er tími til að setja AMÍ undirbúning í fyrsta sæti og liðið okkar í fyrsta sæti.
 
Skellið ykkur á bólakaf í undirbúning-það mun borga sig í næstu viku!