12 titlar á ÍM 25 2009
Að loknu Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug þá var útkoman þessi:
Frábært sundlið í alla staði í öllum sínum gerðum.
Gríðarlega mikið af bætingum og flottum sundum.
12 íslandsmeistaratitlar af fjörutíu mögulegum.
4 íslandsmet og 3 meyjamet
Alls settum við 52 innanfélagsmet
Árni Már Árnason:
Íslandsmeistari í 100m fjórsundi, 100m skriðsundi og 50m skriðsundi
Setti íslandsmet í 50m skriðsundi.
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson:
Íslandsmeistari í 50m 100m og 200m baksundi, 100m flugsundi 200m skriðsundi, vann fimm greinar og keppti í alls 21 sundi.
Erla Dögg Haraldsdóttir:
Íslandsmeistari í 100m fjórsundi, 50m bringusundi,
Setti þrjú íslandsmet, í 50m bringusundi 100m fjórsundi og 200m fjórsundi.
Var stigahæsta sundkona ÍM 25 2009.
Gunnar Örn Arnarson :
Íslandsmeistari í 400m fjórsundi, skammt frá piltametinu.
Kristinn Ásgeir Gylfason
Íslandsmeistari í 200m flugsundi
Ólöf Edda Eðvarðsdóttir
Setti þrjú íslandsmet í meyjaflokki 2 x í 100m bringusundi og 1x í 200m bringusundi.
Sundmenn sem náðu lágmörkum í landsliðshópa.
Norðurlandameistaramót unglinga: Gunnar Örn Arnarson og Lilja Ingimarsdóttir
Landskeppni við Færeyinga: Kristinn Ásgeir Gylfason, Lilja María Stefánsdóttir, María Ása Ásþórsdóttir, Diljá Heimisdóttir, Jóna Helena Bjarnadóttir, Soffía Klemenzdóttir.
EM 25: Davíð Hildiberg Aðalsteinsson og Sindri Þór Jakobsson
Áfram ÍRB við erum erum frábær.