Fréttir

14 dagar í ÍM25
Sund | 8. nóvember 2013

14 dagar í ÍM25

Nú eru aðeins 14 dagar þar til ÍM25 byrjar og við erum alveg að ná hápunktinum á tímabilinu í 25 m laug.

Munið kæru sundmenn og foreldrar að nú er komið að hvíldartímabilinu og í næstu viku verða breytingar á æfingatímum, morgunæfingar byrja seinna og kvöldæfingar búnar fyrr.

Næsta vika er +1 vika og í vikunni þar á eftir sem er sama vika og mótið er skyldumæting á allar 8 æfingarnar hjá Landsliðs- og Úrvalshóp.

Æfingar ganga mjög vel og sundmenn eru hvattir til þess að fara út fyrir þægindarammann og fara á töfrastaðinn þar sem mikil vinna skilar framförum og betri árangri.

Á keppnisdag skiptir öllu að trúa á sig, allt getur gerst: http://www.youtube.com/watch?v=LccxeBMLibY#t=95