3 vikur í ÍM50
21 dagur og við teljum enn niður. Tíminn líður á ótrúlega miklum hraða eins og sundmennirnir okkar verða vonandi á eftir þrjár vikur.
Sundmenn synda hratt þegar þeir eru hraustir, fá næga hvíld, æfa vel og mæta.
Á SH mótinu voru vísbendingar um að sundmennirnir séu á réttri leið, en það sem að lokum ræður úrslitum um það hverjum gengur best er hvernig sundmönnum gengur að halda sér hraustum svo þeir geti tekið vel á því og haldið í jákvæðnina.