Fréttir

Sund | 2. mars 2012

40 dagar í ÍM50

Nú þegar aðeins 40 dagar eru í ÍM50 eru æfingarnar farnar að þyngjast. Sundmenn verða nú að leggja sig alla fram við æfingarnar ef þeir gera það ekki nú þegar.

Í næstu viku mun SSÍ gefa út endanleg lágmörk fyrir landsliðsverkefni. Við eigum stóran hóp sundmanna sem eru nálægt því að ná inn í íslensk landsliðsverkefni, þar á meðal inn á Ólympíuleikana í London.

Það eru eingöngu allra einbeittustu og skuldbundnustu sundmennirnir sem ná sæti í þessum liðum og þetta er aðeins byrjunin því ef þið náið inn á einhver þessara móta verður verkefnið þar að ná enn meiri árangri.

Gangi ykkur vel í undirbúningi fyrir mótið!