Fréttir

Sund | 22. nóvember 2008

7 gull í hús á ÍM - 25 í sundi

Okkar fólk heldur uppteknum hætti á ÍM - 25.  Frábær árangur náðist í dag þar sem sundmennirnir unnu til 4 gullverðlauna og 5 annarra verðlauna.  Jóna Helena Bjarnadóttir reið á vaðið með glæsilegum sigri í 400 metra fjórsundi, Gunnar Örn Arnarsson gerði slíkt hið sama í karlaflokki, glæsilegir sigrar í tveimur fyrstu greinum dagsins.  Davíð Hildiberg Aðalsteinsson hélt uppteknum hætti frá því í gær með því að sigra í 100 metra baksundi á 55,30 sem er líkt og í gær næst hraðasti tími Íslendings frá upphafi, einungis Örn Arnarson hefur synt á betri tíma.  Lilja Ingimarsdóttir synti stórkostlegt 100 metra bringusund þar sem lenti í þriðja sæti, bætti Íslandsmet telpna og náði í leiðinni lágmarki á NMU.  Aftur var komið að Davíðs þætti Aðalsteinssonar þegar hann fór á kostum í 200 metra skriðsundi og sigraði með glæsibrag.  Soffía Klemenzdóttir hlaut silfurverðlaun í 400 metra fjórsundi, Guðni Emilsson vann til bronsverðlauna í 100 metra bringusundi, í 4*50 metra fjórsundi synti karlasveitin til silfurverðlauna og kvennasveit A til bronsverðlauna þar sem B - sveitin hafnaði í fjórða sæti.  Fjöldi innanfélagsmeta féll í dag og verður þeim gerð nánari skil síðar.  Síðasti keppnisdagur fer fram á morgun þar sem okkar fólk ætlar að standa sig vel.  ÍM - 25 voru gerð góð skil og hægt er að nálgast það á slóð hér á síðunni. 

Íþróttafréttir