Fréttir

Sund | 7. mars 2010

Að Fjölnismóti loknu

Fjölmargir sundmenn úr röðum ÍRB kepptu um helgina á Vormóti sunddeildar Fjölnis.  Árangur var almennt nokkuð góður sem endurspeglaðist í fjölda verðlauna og bætinga á fyrri árangri.  Næsta verkefni sundmannanna er þátttaka á Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug eftir tvær vikur.  Þar ætla ÍRB-ingar ekki að láta sitt eftir liggja og ná góðum árangri líkt og fyrri daginn.