Fréttir

Sund | 17. janúar 2011

Aðalfundur sunddeildar

Aðalfundur Sunddeildar Keflavíkur verður haldinn miðvikudaginn 26. janúar kl. 20.00 í K-húsinu, Sunnubraut 34. Vonumst til að sjá sem flesta sundmenn eða aðstandendur þeirra.

Dagskrá aðalfundar:
1. Fundarsetning.
2. Kosinn fundarstjóri.
3. Kosinn fundarritari.
4. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram.
5. Formaður les skýrslu stjórnar um starfssemina á liðnu starfsári.
6. Gjaldkeri leggur fram og útskýrir endurskoðaða reikninga deildarinnar fyrir liðið starfsár.
7. Kosningar:
a) Kosinn formaður.
b) Kosnir 4 meðstjórnendur.
c) Kosnir 3 menn í varastjórn
d) Kosnir 2 endurskoðendur og einn til vara.
e) Kosið í nefndir og ráð sem aðalfundur ákveður.
8. Ákveðið æfingargjald fyrir næsta starfsár.
9. Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
10. Önnur mál
11. Fundi slitið.