Fréttir

Aðeins ein vika í AMÍ
Sund | 13. júní 2012

Aðeins ein vika í AMÍ

 

Nú þegar aðeins ein vika er til stefnu eru Framtíðar-og Afrekshópur ÍRB að sigla úr besta mætingarmánuði frá upphafi. Þetta þýðir að sundmenn eru að leggja hart að sér til þess að ná árangri á mótinu í næstu viku.

Í ár er það ÍRB sem heldur mótið í Vatnaveröld og er heill her sjálfboðaliða að gera allt tilbúið fyrir helgina.

AMÍ verður mikil sýning fyrir ÍRB og við vonum að þið komið öll og takið þátt í upplifuninni.

Þið sundmenn sem eruð að fara að keppa, haldið áfram að vera svona dugleg að æfa. Nú er rétti tíminn til að synda hratt hratt hratt!