Fréttir

Æfingabúðir fyrir landsliðsfólk
Sund | 14. október 2014

Æfingabúðir fyrir landsliðsfólk

Hingað til lands er kominn Eyleifur Jóhannesson sundþjálfari sem hefur tvö ár í röð fengið viðurkenninguna þjálfari ársins í Danmörku.

Eyleifur er hér ásamt sundmönnum úr Aalborg Svommeklub í æfingabúðum í Ásvallalaug.  Um leið hefur hann samþykkt að koma og hitta þá sundmenn sem hafa tekið þátt í landsliðsverkefnum á árinu 2013 og 2014. 

Næstkomandi laugardag 18. október verður æfing fyrir umrædda sundmenn í Laugardalslaug. Mæting er kl. 12:00 á Café Easy í Laugardalnum þar sem boðið verður uppá hádegismat. Þar mun Eyleifur hitta hópinn, halda fyrirlestur og svara spurningum.  Að því loknu mun hann stjórna æfingu frá kl 14.30 til 16:30.

Eftirfarandi sundmönnum úr ÍRB hefur verið boðið að taka þátt í æfingabúðunum:

Kristófer
Erla
Baldvin
Þröstur
Birta
Íris
Svanfríður
Sylwia
Sunneva
Karen
Eydís
Gunnhildur
Stefanía