Æfingadagur 1
Laugardaginn 17. október er ráðgerður fyrsti æfingadagurinn hjá okkur fyrir Sprettfiska, Flugfiska og Sverðfiska í Vatnaveröld.
Æfingadagurinn verður frá 13:00 - 14:00. Stutt og skemmtilegt.
Áherslan á þessum fyrsta æfingadegi verður:
Hvernig hitar sundmaður upp.
Kennsla á stungum og rennsli eftir stungu,
Hvernig gerir maður gilt sund í bringusundi og fleiri sundreglur.
Ásamt góðum leikjum :-)
Æfingadagurinn er mikilvægur undirbúningur fyrir Speedomótið sem verður 31. október í Vatnaveröld.
Áfram ÍRB :-)