Fréttir

Æfingadagur 1
Sund | 22. október 2015

Æfingadagur 1

 

Laugardaginn 17. október mættu Sprettfiskar, Flugfiskar og Sverðfiskar í Vatnaveröld á fyrsta æfingadag vetrarins. Mætingin var frábær og ótrúlega skemmtilegt að sjá hvað krakkarnir eru duglegir. Á æfingunni var farið yfir hvernig á að hita upp fyrir mót, hvernig á að gera gilt sund í bringusundi og svo var farið í stungur og rennsli eftir stungu. Í lokinn var farið í stuttan leik. Æfingin var góður undirbúningur fyrir Speedomótið sem verður 31. október í Vatnaveröld.


Það er augljóst að veturinn verður líflegur og skemmtilegur með þessum flottu sundkrökkum í ÍRB.