Fréttir

Æfingadagur fyrir yngri hópa
Sund | 29. september 2013

Æfingadagur fyrir yngri hópa

Æfingardagur fyrir Sprettfiska, Flugfiska og Sverðfiska verður næsta laugardag kl. 15-17 í Vatnaveröld. Þessi æfingadagur er skipulagður með það í huga að hjálpa yngstu sundmönnunum að undirbúa sig fyrir TÝR mót Ægis sem verður helgina á eftir. Sundmenn þurfa að vera tilbúnir og komnir í sundföt kl. 15:00 svo mælt er með því að mæta kl. 14:40.

Allir þurfa að hafa sundgleraugu og sundhettu með sér. Á æfingunni verða ýmis tækniatriði æfð undir stjórn yfirþjálfara og með þjálfurum yngri hópa. Æfingadagurinn endar svo á leikjum sem styrkja liðsandann. Sjáumst öll á laugardaginn!