Fréttir

Sund | 29. júlí 2010

Æfingaferð 2. dagur

Þá er æfingardagur tvö búinn. Krakkarnir erum búnir með tvær æfingar í dag, sú fyrri var tækniæfing en á þeirri seinni var synt meira. Anthony, nýi yfirþjálfarinn, hefur séð um æfingarnar í dag. Krakkarnir voru vaktir upp klukkan 06:45 og byrjaði hún klukkan 7:30. Æfingaranar voru báðar 2 klst. Á milli æfinga hafa krakkarnir verið í sundlaugargarðinum og fóru m.a að kaupa sér vindsængur og fleira. Það er mjög góð stemning í hópnum og hér er mikill hiti og vel er passað upp á að bera vel af sólarvörn á alla.Það var heitt í dag en það dró þó fyrir sólu hluta úr degi sem var mjög gott. Hér er nóg af mat og drykkjum fyrir alla. Hlaðborð á morgnana, hádeginu og á kvöldin og léttir réttir þar á milli.  Myndir frá degi tvö eru komnar inn bæði hér og á facebooksíðuna okkar.

Bestu kveðjur frá Spáni.