Fréttir

Sund | 30. júlí 2010

Æfingaferð 3. dagur

Góður dagur að kveldi kominn og allir komnir í ró kl. 11:30. Að venju voru tvær æfingar í dag en á milli þeirra var farið niður á strönd með allan hópinn. Það var flottur hópur sem gekk saman með allar vindsængurnar og bátana þessa 500 m niður á strönd. Eftir seinni æfinguna var síðan rólegur tími þar sem krakkarnir fóru í tölvurnar eða "chilluðu" að sínum hætti. Eftir kvöldmat, sem við borðum yfirleitt kl. 8:30, var haldinn stuttur fundur þar sem farið var yfir skipulag næstu daga og þær ferðir sem við ætlum að fara í hér á Benidorm. Kvöldinu eyddum við svo í hótelgarðinum og horfðum á þau skemmtiatriði sem þar voru í boði. Myndir koma inn í kvöld.

Kveðja frá Spáni, Sibba, Falur og Herdís.