Fréttir

Sund | 31. júlí 2010

Æfingaferð 4. dagur

Þessi dagur byrjaði vel því krakkarnir fengu að sofa til 7:45 í stað 6:45. Eins og áður voru samt tvær æfingar. Á milli æfinga fór hópur á ströndina en aðrir urðu eftir í garðinu og sóluðu sig þar. Eftir matinn var haldið í minigolf. Þar var að sjálfsögðu sett á keppni en það á eftir að tilkynna úrslitin. Þeir sem verð...a fyrir ofan besta fararstjórann eða þjálfarann fá sennilega einhver verðlaun (en það er lítil hætta á því hahaha). Sjáum til hvað gerist þegar úrslitin verða tilkynnt á morgun. Allir voru komnir í ró fyrir kl. 12 og stefnir í góðan dag á morgun. Myndir á morgun því nettengingin er eitthvað að stríða okkur :-)