Fréttir

Sund | 4. ágúst 2010

Æfingaferð 7. dagur

Eftir skemmtilegan dag í gær vaknaði liðið frekar þreytt en ánægt. Allir á æfingu 7.30 og síðan fóru nokkrir á ströndina með Anthony Kattan en aðrir dvöldu við sundlaugarbakkan og höfðu það notalegt. Eftir seinni æfingu og kvöldmat var haldið á ströndina og farið í strandblak. Skemmtilegur dagur og krakkarnir að venju ...frábærir. Allir í hópnum hressir og glaðir. Myndir frá deginum komnar inn á síðuna.