Fréttir

Æfingar hefjast!
Sund | 6. ágúst 2012

Æfingar hefjast!

Minnum á að Áhuga-, Framtíðar-, Keppnis- og Landsliðshópur byrja að æfa á morgun þriðjudaginn 7. ágúst (seinnipart) samkvæmt æfingartöflu. Allir þurfa að vera búnir að skrá sig og ganga frá æfingargjöldum fyrir þann tíma. 

Allar upplýsingar eru á heimasíðum félaganna undir Vertu með!

Sundmenn eiga að koma með samning undirritaðan á æfingu :-) Hann hefur verið sendur í tölvupósti á alla. Nokkur eintök verða upp í Vatnaveröld á morgun en foreldrar verða að koma með sundmönnum og skrifa undir og skila til þjálfara.

Þessa vikuna verður ekki þrek né jóga fyrir Keppnishóp og Landsliðshóp. Þrekið fyrir Keppnis- og Landsliðshóp byrjar í næstu viku 13. ágúst og jógað fyrir Landsliðshóp einnig.