Fréttir

Æfingar hefjast á morgun-lítilsháttar breyting á æfingatöflu
Sund | 17. ágúst 2014

Æfingar hefjast á morgun-lítilsháttar breyting á æfingatöflu

Við bjóðum alla sundkrakka velkomna aftur eftir sumarfrí og nýja sundmenn bjóðum við velkomna í hópinn. Á morgun hefjast æfingar aftur eftir sumarfrí hjá þeim hópum sem ekki voru þegar byrjaðir. Æfingataflan er að mestu eins og síðasta vetur en þó hafa orðið lítilsháttar breytingar á henni svo við biðjum foreldra að skoða hana vel: http://www.keflavik.is/sund/files/aefingatoflur-2014-2015_islensk.pdf/

Næsti matsdagur fyrir nýja sundmenn verður laugardaginn 23.ágúst milli 12:30 og 14:30.

Leiðbeiningar fyrir skráningu má sjá á heimasíðunni undir Vertu með: http://www.keflavik.is/sund/vertu-med/