Fréttir

Æfingardagur Sprettfiska, Flugfiska og Sverðfiska á morgun í Vatnaveröld!
Sund | 1. febrúar 2013

Æfingardagur Sprettfiska, Flugfiska og Sverðfiska á morgun í Vatnaveröld!

 

Þeir sundenn sem æfa í Sprettfiskum, Flugfiskum og Sverðfiskum fá að æfa sig að synda í 50 m laug á morgun kl. 15-17 í Vatnaveröld. 

Þessi æfingadagur er skipulagður með það í huga að hjálpa yngstu sundmönnunum að undirbúa sig fyrir Gullmót KR sem haldið verður helgina á eftir. Það er mikilvægt að allir sundmenn sem keppa á Gullmótinu og eru að æfa í þessum hópum mæti á æfingardaginn þar sem þau fá þarna tækifæri til þess að prófa að synda í 50 m laug eins og verður á mótinu. Vinsamlegast ræðið við þjálfara barnsins ef þið eruð ekki viss um hvort barnið sé að keppa eða hvort það eigi að vera á æfingadeginum.

 

Sundmenn þurfa að vera tilbúnir og komnir í sundföt kl. 15.00 svo mælt er með því að mæta kl. 14.40. Allir þurfa að hafa sundgleraugu og sundhettu með sér. Á æfingunni verða ýmis tækniatriði æfð undir stjórn yfirþjálfara og með þjálfurum yngri hópa. Æfingadagurinn endar svo á leikjum sem styrkja liðsandann. Sjáumst öll á laugardaginn!