Fréttir

Sund | 11. mars 2012

Áframhaldandi samstarf

Sunddeildin hefur samið við Landsbankann um áframhaldandi samstarf á þessu ári. Landsbankinn hefur verið okkar helsti styrktaraðili sl. ár. Landsabankinn hefur einnig styrkt okkur veglega við mótahald en ÍRB heldur eitt stórt mót á ári, í maí, sem ber heitið: Landsbankamót ÍRB. Landsbankinn hefur útvegað öll verðlaun á mótið og einnig fyrir lokahófið okkar sem haldið er á sunnudagskvöldið eftir Landsbankamót. Við þökkum Landsbankanum kærlega fyrir að styðja vel við bakið á sundinu í Reykjanesbæ.