Fréttir

Sund | 23. maí 2011

Afrekshópur þjálfar nýja færni

Afrekshópur og nokkrir sundmenn úr Eldri hóp fóru í ævintýraleit í skóglendi Íslands síðustu helgi með hertöku í huga. Liðið eyddi fallegum degi saman í laser tag. Liðin voru keppnisfull og hver bardagi var harður. Hugsanlega hafa sumir fundið framtíðarstarfið sem meðlimir í sérsveit miðað við innlifunina í hlutverkin. Bestu þakkir til Gunnars sem skipulagði ferðina og til allra sem komu-þetta var mjög skemmtilegt!