Fréttir

Sund | 1. september 2010

Áheitasund ÍRB í samvinnu við Björgunarsveitina Suðurnes

Áheitasund elstu sundmanna ÍRB (Keflavíkur og Njarðvíkur) verður föstudaginn 3. september kl. 15. Þá munu sundmennirnir synda frá Víkingaheimum að höfninni í Keflavik. Björgunarsveitin Suðurnes verður sundmönnum til halds og trausts og passar upp á að fyllsta öryggis sé gætt. Sundmennirnir munu ganga í hús nokkru fyrir sundið og safna áheitum og eru bæjarbúar beðnir um að taka vel á móti þeim.