Fréttir

AMÍ - Breyting á gistingu og tjaldsvæði
Sund | 18. júní 2012

AMÍ - Breyting á gistingu og tjaldsvæði

Vegna viðhalds í Holtaskóla munum við færa gistingu og afgreiðslu matar í Myllubakkaskóla sem stendur við Sólvallagötu (sjá kort).
http://ja.is/kort/#q=Myllubakkaskóli&x=325881&y=393345&z=10&from=Vatnaveröld&to=Myllubakkaskóli
Skólinn er aðeins um 300m frá Vatnaveröld.

Tjaldsvæði:
Við höfum einnig heyrt af fjölmörgum sem hafa haft samband við Alex-tjaldsvæði og þeir virðast ekki hafa getað tekið við þeim fjölda sem við áætluðum.

Við höfum því sett upp tjaldsvæði á lóð Myllubakkaskóla. Þar verður í boði rafmagn og salerni.

Við biðjum þá sem eru að koma með vagna að skrá sig hjá Guðnýju á gudnymagg@gmail.com  Allir velkomnir!

Verðinu er stillt í hóf og er aðeins til að mæta kostnaði við rafmagn og leigu á salernum.

Rafmagn í sólarhring kostar 700 kr.
Einn vagn eða hýsi í sólarhring 1.800 kr. (skiptir ekki máli hve margir eru í hýsinu).

Við hlökkum til að eiga skemmtilega daga í Reykjanesbæ með ykkur öllum.

Kær kveðja
Sigurbjörg Róbertsdóttir
Formaður Sundráðs ÍRB