Fréttir

Sund | 26. júní 2011

AMÍ - síðasti dagur

Nú er 6. mótshluta AMÍ lokið. Sundmenn ÍRB hafa staðið sig vel og sundmenn að bæta tíma sína og hala inn stig fyrir ÍRB. Stigastaðan núna er sú að Ægir leiðir með 1135 stig en ÍRB er í öðru sæti með 1077 stig. Önnur lið eru talsvert langt á eftir. Síðasti mótshluti verður spennandi og vonum við að baráttan um 1. sætið verði æsispennandi og ráðist jafnvel ekki fyrr en í boðsundunum. Við bendum fólki á að fylgjast með á Facebook þar sem stigastaða er uppfærð reglulega.

Sundráð ÍRB - facebooksíða.