Fréttir

AMÍ liðið í sólríkri grillveislu
Sund | 16. júní 2015

AMÍ liðið í sólríkri grillveislu

Á laugardaginn komu saman tæplega 100 manns í Sólbrekkuskógi, nutu veðurblíðunnar og áttu góða stund saman í grillveislu AMÍ keppenda. Í ár fara 60 keppendur frá okkur og var stærstur hluti þeirra mættur ásamt fjölskyldumeðlimum og sundmönnum frá ÍA og UMFA sem hér voru í æfingabúðum með efstu hópunum okkar. Grillaðar voru pylsur og svo var farið í leiki sem voru vel skipulagðir og efla liðsandann. Dagurinn einkenndist af léttleika og gleði sem þakka má góðu skipulagi þeirra sem að því komu og auðvitað góða veðrinu.

Takk allir sem komu að þessu og skipulöggðu þennan árlega viðburð.

Gangi ykkur vel í lokaundirbúningi fyrir AMÍ!

Æfið vel!

Fleiri myndir hér: http://www.keflavik.is/sund/myndasafn/?gid=1092