Fréttir

Sund | 6. febrúar 2012

Annar frábær æfingadagur hjá yngri hópum

40 sundkrakkar úr Sprettfiskum, Flugfiskum og Sverðfiskum mættu á laugardaginn á annan  af þremur æfingadögum á þessu sundtímabili.  

 

Þjálfararnir Sóley, Marín, Hjördís og Helga þjálfuðu krakkana undir leiðsögn yfirþjálfarans Anthony.  Sundkrakkarnir og þjálfararnir fengu öll það verkefni að æfa og keppa í lengra sundi en áður. Þannig syntu og kepptu sprettfiskar í 50m, Flugfiskar í 100m og Sverðfiskar í 200m. Allir sundkrakkarnir náðu að synda sína vegalengd og skemmtu sér svo í leikjum á eftir.

 

Vel gert hjá öllum!