Fréttir

Sund | 26. júní 2010

Anthony Kattan, nýr yfirþjálfari ÍRB - new head coach

Sundráð ÍRB hefur skrifað undir samning við nýjan yfirþjálfara, Anthony Kattan. Anthony mun, frá og með næsta sundtímabili taka við yfirþjálfarastöðunni af Steindóri, sem gegnt hefur þeirri stöðu með sóma í hart nær áratug. Steindór er þó hvergi nær á förum, hann mun taka þátt í þjálfun yngri sundmanna á næsta tímabili.

Anthony er  27 ára að aldri, fæddur Breti, en flutti um 10 ára gamall til Nýja Sjálands. Þar gerði hann garðinn frægan sem þjálfari sundliðsins North Shore, fyrst sem þjálfari og síðan sem yfirþjálfari aldurshópa og var sem slíkur valinn þjálfari ársins á Nýja Sjálandi. Hjá North Shore öðlaðist Anthony mikla reynslu, þar sem hann vann með sundþjálfurum í fremstu röð, sem hafa m.a. þjálfað sundmenn á borð við Katie Sexton, heimsmeistara í 200 baksundi og Moss Burmester, heimsmeistara í 200 m flugsundi.

Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Anthony til liðs við okkur, hann er mjög metnaðargjarn og árangursmiðaður en leggur um leið mikla áherslu á góðan liðsanda og að það sé gaman að æfa og keppa, maður að okkar skapi :-)

Við bjóðum Anthony innilega velkominn til ÍRB :-)

 

 

Þessi mynd var tekinn af Anthony við Gullfoss, þegar hann heimsótti okkur fyrr í þessum mánuði