Fréttir

Árni Már á Ólympíuleikunum í London
Sund | 6. ágúst 2012

Árni Már á Ólympíuleikunum í London

 

Árni Már Árnason synti 50m skriðsund á Ólympíuleikunum í London. Árni keppti á 8 braut í 4 riðli af 8. Hann endaði fimmti í sínum riðli.

Hann synti á 22.81 en það er nákvæmlega sami tími og hann synti á í Peking fyrir fjórum árum síðan. Íslandsmet hans í greininni er 22.53.