Árni Már sigraði í ljósmyndakeppni ÓL fara
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) opnaði ásamt Nýherja í dag sýningu á ljósmyndum íslenska Ólympíuliðsins sem tóku þátt í leikunum í Kína í ágúst. Keppendur og aðstoðarfólk þess tóku myndir af því sem fyrir augu þess bar í Peking, þar sem leikarnir voru haldnir. Markmiðið var að fanga þá stemmningu sem var á leikunum og daglegt líf íbúa borgarinnar.ÍSÍ og Nýherji, sem er umboðsaðili Canon á Íslandi, ákváðu að verðlauna fyrir bestu myndina. Fjölmargir keppendur og aðrir innan Ólympíuhópsins sendu myndir í keppnina, en þær er að finna hér á vef Nýherja.
Sérstök dómnefnd valdi eina mynd sem bar af þeim sem bárust í keppnina. Þá mynd tók Árni Már Árnason, sem keppti fyrir hönd Íslands í 50 m skriðsundi. Myndin er af Jakobi Jóhanni Sveinssyni félaga hans í sundlandsliðinu. Dómnefndina skipuðu: Golli (Kjartan Þorbjörnsson) ljósmyndari á Morgunblaðinu og Halldór J. Garðarsson, vörustjóri Canon neytendavara hjá Nýherja.
Um verðlaunamyndina segir: "Kröftug mynd með flotta en um leið einfalda uppbyggingu. Sjónarhornið er skemmtilegt en um leið blekkjandi. Það tekur skoðandann smá stund að átta sig á því hvort myndin sé tekin úr sundlauginni, upp af bakka eða niður í laugina. Ólympíumerkið á upphandleggnum er síðan punkturinn yfir i-ið, flott staðsett í myndinni.
Í verðlaun hlaut Árni Már Canon EOS 450D myndavél með EF-S 18-55 3.5-5.6 linsu. Þorvaldur bróðir hans tók við verðlaununum þar sem Árni er við nám í Bandaríkjunum.
Ljósmyndasýningin verður opin í Café easy/Kaffiteríu ÍSÍ við Engjaveg 6 fram til áramóta.
Tekið af vef ÍSÍ http://www.olympic.is/servlet/IBMainServlet/?nwr_more4688=1697&iw_language=is_IS&ib_page=1