Fréttir

Sund | 1. mars 2009

Árni og Erla stóðu sig á CAA

Þau skötuhjú Árni Már Árnason og Erla Dögg Haraldsdóttir stóðu sig vel á NCCA mótinu í Colonial - deildinni. Sjá heimasíðu liðsins. Árni Már sigraði í þremur greinum 50 skr, 100 br og 200 br og setti skólamet í þeim öllum ásamt því að vera í þremur boðsundssveitum liðs ODU sem settu skólamet, jafnframt setti Árni einnig skólamet á fyrsta spretti í 100yarda skriðsundi á fyrsta spretti í  4 x 100m skrið boðsundi. Árni náði jafnframt B- standard NCAA í öllum sínum greinum. Góð helgi hjá Árna Má þrír titlar og 7 skólamet. Erla Dögg stóð sig líka mjög vel hún vann til silfurverðlauna í þremur greinum, 200 fjór, 100br og 200br og setti skólamet í þeim öllum ásamt því að vera í tveimur boðsundssveitum liðs ODU sem settu skólamet. Erla náði B standard NCAA í 200br þar sem hún bætti gamla skólametið um 6 sekúndur. Góð helgi hjá Erlu Dögg þrenn silfur og 5 skólamet. Til hamingju skötuhjú :-) Stjórn og þjálfarar. Hér er hægt að nálgast videó af mótinu og úrslit

 

                                                                                          

Árni Már, Erla Dögg, Birkir Már og Steindór á góðri stundu í Canet í fyrra.