Fréttir

Átta á leið til Finnlands
Sund | 30. nóvember 2012

Átta á leið til Finnlands

Við erum stolt af því að segja frá því að átta sundmenn sundráðs ÍRB fara á Norðurlandameistaramót unglinga sem haldið verður í Finnlandi eftir tvær vikur. Jón Ágúst, Erla Sigurjóns, Kristófer Sigurðs, Jóhanna Júlía, Ólöf Edda, Berglind Björgvins, Birta María og Íris Ósk náðu öll in á mótið og við óskum þeim velfarnaðar í undirbúningnum. 

Þetta verður fyrsta landsliðsverkefni sem Berglind nær inn á og óskum við henni til hamingju með það. Kristófer og Jón náðu lágmörkunum í fyrra en komust ekki á mótið svo þetta verður líka þeirra fyrsta mót þar sem þeir keppa fyrir Ísland. 

Til hamingju öll, við erum stolt af ykkur.