Fréttir

Baldvin sundmaður mánaðarins í Landsliðshópi
Sund | 6. maí 2013

Baldvin sundmaður mánaðarins í Landsliðshópi

 

Baldvin (miðja) með liðsfélögum sínum Þresti (t.v.) og Kristó (t.h.) að horfa á Ólympíuleikana í sundi í æfingabúðunum í Danmörku.

Baldvin Sigmarsson er sundmaður aprílmánaðar í Landsliðshópi.

 

1) Hve lengi hefur þú stundað sund?
Ég hef stundað sund síðan ég var fjögra ára

2) Hve margar æfingar stefnir þú á að ná á viku núna?
Það eru átta

3) Hvaða aðrar æfingar stundar þú til þess að hjálpa þér í sundinu?
Þrek og yoga

4) Hvaða markmiði ert þú að vinna að fyrir næstu 6 mánuði?
Aðallega baksundið og  bringusundið til að ná að fullkomna fjórsundið

5) Hvaða markmiði ert þú að vinna að fyrir næstu tvö ár?
Það verður líklega það sama og ég er með fyrir sex mánuðina

6) Hver er besta upplifun sem þú hefur átt með sundliðinu?
Þegar ég náði eyof lámarki með 16 sekóndubrotum

7) Hvaða mót sem þú hefur farið á heldur þú mest upp á?
IM 25 2011 setti tvö íslandmet þar

8) Hvaða sund eða annan árangur hefur þú verið ánægðust með?
200 flug og 400 fjór á IM 25 2011 setti íslandsmet í báðum

9) Hverjar eru uppáhalds greinarnar þínar?
200 flug og 400 fjór

10) Hvað fær þig til þess að vakna á morgnanna og mæta á æfingu?
Með því að ég get bætt mig í svo miklu

11) Til hvaða sundmanna lítur þú mest upp til?
Davíð Hildiberg er frekar hátt uppi hjá mér

12) Til hverja utan við sundið lítur þú mest upp til?
Shaquille O‘neal klárlega

13) Hvert í heiminum langar þig mest til þess að ferðast?
Bandaríkjana held ég bara

14) Er eitthvað annað en sund sem þú hefur ástríðu fyrir?
Rúmið mitt aðalega

15) Hver er uppáhalds bókin þín og bíómynd?
Ég les voða lítið svo það er ekkert það en Rocky 4 uppáhalds mynd

16) Hvert er uppáhalds nammið þitt?
Rautt m&m langbest

17) Hvernig myndu vinir þínir lýsa þér í einu orði?
Snælduruglaður

18) Hver er uppáhalds teiknimyndapersónan þín, úr bókum, sjónvarpsþáttum eða bíómyndum?
Brock úr pokemon