Fréttir

Bara 30 dagar í AMÍ og 45 í UMÍ!
Sund | 13. maí 2014

Bara 30 dagar í AMÍ og 45 í UMÍ!

Nú þegar það styttist í AMÍ og UMÍ þurfa allir að stefna á að ná sínum besta æfingamánuði á tímabilinu. 

Þessi mót eru einu mótin sem ungir sundmenn á Íslandi geta prófað fyrir alvöru styrkleika sinn meðal jafnaldra en ekki við sundmenn sem eru miklu eldri. 

Hver sundmaður þarf að taka ábyrgð á því að fylgja æfingaáætlun frá þjálfurum sem gerir ráð fyrir aðlögun og hvíld.

Bæði mótin eru liðakeppnir þar sem hver sundmaður skiptir máli. 

Skellum okkur  í laugina og rokkum þennan mánuð!