Fréttir

Berglind er sundmaður mánaðarins í Landsliðshópi
Sund | 25. janúar 2013

Berglind er sundmaður mánaðarins í Landsliðshópi

Sundmaður mánaðarins í Landsliðshópi er Berglind Björgvinsdóttir. 

 

1) Hve lengi hefur þú stundað sund?
Byrjaði 6 ára hætti svo 11 ára og byrjaði aftur 12 ára 
2) Hve margar æfingar stefnir þú á að ná á viku núna?
8 sundæfingar
3) Hvaða aðrar æfingar stundar þú til þess að hjálpa þér í sundinu?
Þrek og yoga
4) Hvaða markmiði ert þú að vinna að fyrir næstu 6 mánuði?
Ná 600 fina stigum og ná inná annað landsliðsverkefni 
5) Hvaða markmiði ert þú að vinna að fyrir næstu tvö ár?
650-700 fina stig
6) Hver er besta upplifun sem þú hefur átt með sundliðinu?
NMU í Finnlandi og Æfingabúðirnar í Danmörku
7) Hvaða mót sem þú hefur farið á heldur þú mest upp á?
NMU í Finnlandi
8) Hvaða sund eða annan árangur hefur þú verið ánægðust með?
Á ím25 seinast þegar ég náði inná NMU 
9) Hverjar eru uppáhalds greinarnar þínar?
50,100 og 200 bringa og 100 og 200 fjór
10) Hvað fær þig til þess að vakna á morgnanna og mæta á æfingu?
Vekjaraklukkan og að ég veit að ég verð betri
11) Til hvaða sundmanna lítur þú mest upp til?
Rebeccu Soni 
12) Til hverja utan við sundið lítur þú mest upp til?
Afa
13) Hvert í heiminum langar þig mest til þess að ferðast?
New York, Kína og Ástralíu
14) Er eitthvað annað en sund sem þú hefur ástríðu fyrir?
Hlaupa og körfubolti
15) Hver er uppáhalds bókin þín og bíómynd?
Bókin er allar bækur eftir Bryndísi Jónu og myndin er Pitch Perfect
16) Hvert er uppáhalds nammið þitt?
Bubblizz hlaup 
17) Hvernig myndu vinir þínir lýsa þér í einu orði?
Vandræðaleg!
18) Hver er uppáhalds teiknimyndapersónan þín, úr bókum, sjónvarpsþáttum eða bíómyndum?
Maggi Víglunds úr Skrímsli HF