Fréttir

Sund | 8. mars 2011

Bikarkeppni um helgina-engar æfingar í Vatnaveröld 9.-11. mars

Bikarkeppni Sundsambands Íslands verður haldin hér á okkar heimavelli í Vatnaveröld 11.-12. mars. Við hvetjum alla til þess að koma og sjá bestu sundmenn Íslands keppa. Engar æfingar verða í Vatnaveröld 9.-11. mars vegna keppninnar því er alveg kjörið að nota tækifærið og styðja og hvetja okkar fólk.
 
 
Nánari upplýsingar um bikarkeppnina og tímasetningar verður að finna á heimasíðu mótsins http://www.sundsamband.is/servlet/IBMainServlet/?ib_page=348