Sund | 2. ágúst 2011
Bilun í skráningarsíðu
Í gær hófst skráning á sundæfingar fyrir meðlimi í Afrekshópi, Framtíðarhópi og Eldri hópi. Því miður virðist vera einhver villa hjá þeim aðila sem sér um skráningarsíðuna. Allir sem reyna að greiða með kreditkorti fá tilkynningu um að ekki sé heimild á korti eða að kortanúmer sé vitlaust. Við erum að vinna í að láta laga þetta og biðjum fólk um að prófa að skrá aftur síðar í dag. Við látum einnig vita hér á síðunni um leið og þetta er komið í lag.