Fréttir

Sund | 6. júní 2007

Birkir Már með gull og Íslandsmet í Monaco

Birkir Már Jónsson synti mjög vel í sigursveit Íslands í 4 * 200 metra skriðsundi sem þar að auki setti Íslandsmet í greininni.  Birkir Már bætti sig einnig í 100 metra flugsundi þar sem hann hafnaði í 4. sæti.  Erla Dögg hafnaði í 3. sæti í 100 metra bringusundi og Davíð Hildiberg í 6. sæti í 100 metra baksundi, bæði voru þau rétt við sína bestu tíma.