Fréttir

Breytingar á æfingatöflu!
Sund | 22. september 2012

Breytingar á æfingatöflu!

 

Nú hafa Sprettfiskar og Flugfiskar verið sameinaðir bæði í Akurskóla og Heiðarskóla þar sem þessir hópar voru of litlir. Í staðin verða hóparnir sameinaðir á æfingatíma Flugfiska. Stærri hópur þýðir meiri félagsskapur og meira fjör!

Mikil eftirspurn hefur verið eftir plássi í Löxum og Silungum og verður stofnaður nýr hópur Laxar/Silungar til þess að svara þeirri eftirspurn. Þessi nýi hópur verður í æfingatöflunni þar sem Sprettfiskar voru áður. Ný æfingatafla með þessum breytingum er komin á síðuna: http://keflavik.is/sund/vertu-med/aefingataflan-12-13/