Byrjun tímabils - Innritun - Prufuæfingar
Sælir kæru foreldrar.
Nú er nýtt sundtímabil að hefjast og innritun hefst 16. ágúst.
Sundhóparnir Gullfiskar (2020-2021) og Silungar ( 2018-2019) raðast sjálfkrafa eftir aldri.
Í hópa frá Löxum og upp úr er raðað eftir getu. Allir nýir sundmenn 6 ára og eldri fara á prufuæfingar í Vatnaveröld fimmtudaginn 17. ágúst kl. 16.30-17.30. Prufuæfing tekur 5-10 mínútur fyrir hvern sundmann þar sem Jóna Helena þjálfari metur hvaða hópur hentar best hverjum og einum. Fyrir þá sem komast ekki 17. ágúst þá verður önnur prufuæfing mánudaginn 21. ágúst í Vatnaveröld kl. 16:00 -16:30.
Sundmenn sem mæta á prufuæfingar notast við sundklefana niðri og mæta í grynnri enda laugar þar sem Jóna Helena þjálfari tekur á móti þeim.
Annars verða prufuæfingar í vetur eftir samkomulagi og fara fram í Vatnaveröld. Hafið samband við Jónu Helenu þjálfara, s: 849-0222, netfang: jonahelena@gmail.com
Aðrir sundmenn tilheyra áfram þeim hópi sem þeir voru í þangað til þeir fá boð um tilfærslu.
Ef þú hefur áhuga á að vera í okkar frábæra sundliði þá finnur þú upplýsingar um gjaldskrána, æfingartöflur og æfingahópana inn á heimasíðum keflavik.is/sund og umfn/sund.
Allir sundmenn verða innrita sig og ganga frá gjöldum fyrir tímabilið. Hægt er að dreifa greiðslum og nota hvatagreiðslur fyrir börn á aldrinum 4-18 ára
https://www.sportabler.com/shop/sundradirb/sund
Afrekshópur og Framtíðarhópur fóru af stað 8. ágúst.
Æfingar hjá Háhyrningum hefjast miðvikudaginn 16. ágúst.
Æfingar hjá öllum yngri hópum hefjast miðvikudaginn 23. ágúst.
Gjaldkerar félagsins veitir upplýsingar um skráningar og öllu sem því við kemur.
Gjaldkeri Sunddeildar Keflavíkur er Lilja Dögg Karlsdóttir
GSM: 821 6379 Netfang: gjaldkeri.sk@gmail.com