Fréttir

Davíð fékk brons með boðsundsveitinni
Sund | 31. maí 2013

Davíð fékk brons með boðsundsveitinni

Davíð synti fyrsta sprett í 4x100 m skriðsund boðsundi og var á tímanum 52.58 og lenti liðið í 3 sæti á þessum síðasta degi Smáþjóðaleikanna. Davíð bætti tíma sinn í 100 skrið á 1. degi mótsins þegar hann var á 52.22 og var þá í fimmta sæti í úrslitum. Til hamingju Davíð með verðlaunin þín fjögur, silfur í 100 bak, 2 silfur og eitt brons með boðsundsveitinni og þar af tvö Íslandsmet í 4x200 skrið og 4x100 fjór.