Fréttir

Sund | 21. nóvember 2010

Davíð í fantaformi

Davíð Hildiberg Aðalsteinsson er kominn í gírinn hjá Arizona State háskólanum. Davíð keppti um helgina á Arena Invitational á Long Beach í California og var að bæta tímana sína í 100 og 200m baksundi allverulega. Greinilegt er að hann er búinn að ná tökum á yarda lauginni og er að gera góða hluti. Hér er hægt að nálgast heimasíðu mótsins og heimasíðu skólans.