Fréttir

Davíð með silfur í 4x100 fjórsund boðsundi á nýju Íslandsmeti
Sund | 30. maí 2013

Davíð með silfur í 4x100 fjórsund boðsundi á nýju Íslandsmeti

Davíð og liðsfélagar hans settu nýtt Íslandsmet í 4x100 m fjórsundi og unnu til silfurverðlauna. Davíð tók fyrsta sprett, baksund, á tímanum 57.71 sem er 0.2 sek betra en tíminn sem hann var á þegar hann vann silfur í 100 bak. Davíð keppti einnig í 50 skrið og var sjötti aðeins 0.07 frá sínum besta tíma.

Vel hefur gengið hjá íslenska liðinu og mörg verðlaun skilað sér en það er líka frábært að sjá að það er hörð keppni frá öðrum löndum sem eru greinilega á uppleið eins og til dæmis stelpan frá Lúx fædd 1997 sem vann 50 skrið á 25 sek-vá!

Baráttukveðjur til íslenska liðsins fyrir síðasta dag mótsins